Viðskipti innlent

Össur innkallar þrjú þúsund gervihné

Jón Sigurðsson sem er forstjóri Össurar, segir fyrirtækið leggja höfuðáherslu á öryggismál og velferð sjúklinga sem nota gervilimi fyrirtækisins.
Jón Sigurðsson sem er forstjóri Össurar, segir fyrirtækið leggja höfuðáherslu á öryggismál og velferð sjúklinga sem nota gervilimi fyrirtækisins.

Stoðtækjafyrirtækið Össur hefur innkallað fjórar tegundir af Total Knee-gervihné fyrirtækisins vegna galla sem í þeim er að finna.

"Þetta er framleiðslugalli í pinna sem keyptur er af utanaðkomandi aðila," segir Sigurborg Arnarsdóttir, upplýsingafulltrúi og tengiliður fjárfesta hjá Össuri, en alls þarf að innkalla um 3.000 gervihné sem farið hafa í dreifingu um heim allan.

Pinninn sem um ræðir er í einum af sjö liðum hnésins, en í reglubundnu eftirliti varð vart við sprungur í honum. "Við erum ánægð með hversu hratt hefur tekist að vinna þetta og fljótt og vel gengið að ná til allra hlutaðeigandi," segir Sigurborg, en fyrirtækið hefur ekki áður lent í jafnviðamikilli innköllun. "Svo hafa ekki heldur komið upp nein slys eða annað slíkt vegna gallans þannig að við höfum náð að fyrirbyggja það."

Á vef Össurar, www.ossur.com, er haft eftir Jóni Sigurðssyni, forstjóra fyrirtækisins, að þar á bæ séu öryggismál tekin mjög alvarlega. "Við fórum af stað með innköllunina jafnskjótt og við urðum vör við gölluðu pinnana. Enda er velferð sjúklinganna okkur efst í huga. Við grípum svo að auki til aðgerða sem tryggja eiga gæði og öryggi hnjánna sem koma í staðinn."

Total Knee-gervihnén eru af tegund 1100, 1900, 2000 og 2100, en á vef Össurar er að finna yfirlit yfir raðnúmer hnjánna sem um ræðir, en hné sem afgreidd voru fyrir 7. júní í fyrra eru ekki plöguð af gallanum.

Fjallað er um Össur í nýrri fyrirtækjagreiningu greiningardeildar Landsbankans og segist deildin telja að mjög spennandi tímar séu framundan hjá fyrirtækinu. "Félagið hefur stækkað mikið á síðastliðnu ári og er áætlað að velta ársins í ár verði tæplega tvöföld velta "gamla" Össurar 2005," segir bankinn og bendir á að frá því að verðmat hans á Össuri kom út fyrir helgi hafi úrvalsvísitalan lækkað meðan hlutabréfaverð Össurar hafi nánast staðið í stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×