Innlent

Skilorðsbundinn dómur vegna fíkniefnabrota

Ungur karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í eins mánaðar fangelsi, sem skilorðsbundið er til þriggja ára, fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn var handtekinn þegar lögregla fann á honum nokkur grömm af marijúana eftir að hafa stöðvað bíl hans. Við leit heima hjá manninum fundust um 80 grömm af hassi, hátt 40 grömm af marijúana auk kannabisfræja. Ákærði viðurkenndi fyrir dómi að hann ætti efnin og þar sem hann hafði tvisvar áður verið sektaður fyrir fíkniefnabrot þótt eins mánaðar fangelsi hæfileg refsing, skilorðsbundin til þriggja ára. Þá eru efnin gerð upptæk samkvæmt dómnum og maðurinn dæmdur til að greiða allan sakarkostnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×