Innlent

Enn á gjörgæslu eftir harðan árekstur

Farþegi í fólksbíl, sem slasaðist alvarlega í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar í gærkvöldi, er enn á gjörgæsludeild og verður líklega í allan dag, að sögn vakthafandi læknis á deildinni. Ástand hans er stöðugt og hann er ekki talinn í lífshættu. Þá er maðurinn sem ráðist var á aðfaranótt laugardags á Laugaveginum einnig enn í öndunarvél á gjörgæslu en ástand hans mun þó vera stöðugt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×