Innlent

Skorinn illa á háls á skemmtistað

MYND/Róbert

Ráðist var á mann og hann skorinn illa á háls á skemmtistað við Smiðjustíg í miðborginni í nótt. Árásarmaðurinn hafði brotið glas og lagði til mannsins en hann fékk stóran skurð á háls auk nokkurra áverka annars staðar á líkamanum þar sem hann reyndi að verja sig. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og voru saumuð tuttugu spor í hálsinn á honum en hann mun þó ekki vera í lífshættu. Vitni greindu frá því hver árásarmaðurinn var og lögregla leitar hans nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×