Innlent

Misnotaði tólf ára stúlku

Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni sem misnotaði dóttur sambýliskonu sinnar kynferðislega á sex ára tímabili. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa fyrst haft samræði við stúlkuna þegar hún var tólf ára, aftur nokkrum sinnum þegar stúlkan var þrettán til fjórtán ára og að lokum þegar hún var átján ára.  Fimm dómarar kváðu upp dóminn. Fjórir fundu manninn sekann um öll brotin en einn dómari, Jón Steinar Gunnlaugsson, skilaði séráliti þar sem hann taldi ósannað að maðurinn hefði misnotað stúlkuna þegar hún var tólf til fjórtán ára.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×