Innlent

Stefndi í óeirðir í Grindavík

Á fjórða tug reiðra ungmenna á nokkrum bílum héldu frá Keflavík til Grindavíkur á tíunda tímanum í gærkvöld til að jafna einhverjar óljósar sakir við ungmenni þar, og stefndi í óeirðir. Lögreglunni í Keflavík var gert viðvart, sem sendi þegar nokkra lögreglumenn á tveimur bílum á vettvang, og tókst lögreglumönnunum að stilla til friðar áður en til átaka kom. Enginn meiddist, ekkert eignatjón varð og enginn var handtekinn en lögregla veit hverjir hlut áttu að máli, ef eitthvað viðlíka skyldi taka sig upp aftur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×