Sport

Raikkönen með besta tímann á Spa

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen náði besta tímanum á æfingum á Spa brautinni í Belgíu í morgun, en hellirigning var á brautinni. Það var félagi Raikkönen hjá McLaren, Alex Wurz, sem náði öðrum besta tímanum. Fernando Alonso hjá Renault getur tryggt sér heimsmeistaratitilinn ef úrslit helgarinnar verða honum hagstæð, en greinilegt er að Raikkönen ætlar hvergi að gefa eftir í toppbaráttunni þó munurinn sé mikill.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×