Sport

Alonso vonar að Kimi geri mistök

Spænski formúluökuþórinn Fernando Alonso hjá Renault segist ekki vera að hugsa um heimsmeistaratitilinn þegar hann keppir á Spa brautinni í Belgíu á sunnudaginn, en svo gæti farið að hann titillinn yrði hans um helgina. "Ég er ekkert að hugsa um titilinn núna, heldur einbeiti ég mér að því að vinna kappaksturinn. Það er hinsvegar ekkert leyndarmál að ef McLaren verður á í messunni, geta hlutirnir verið fljótir að breytast. Ég þarf í raun ekki annað en að krækja í fjögur stig ef Kimi Raikkönen lýkur ekki keppni," sagði Alonso, sem stefnir hratt á sinn fyrsta titil sem ökumaður eftir frábæra frammistöðu á tímabilinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×