Innlent

Flugliðinn enn í haldi vegna morðrannsóknar

Stúlkan sem myrt var á varnasvæði bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli  síðastliðið sunnudagskvöld hét Ashley Turner. Hún var fædd í Fredrick í Marylandríki 20. mars árið 1985. Hún gekk til liðs við bandaríska flugherinn að loknu framhaldsskólanámi og að þjálfun lokinni kom hún til starfa í tæknideild björgunarsveitar varnarliðsins. Hún lætur eftir sig foreldra og bróður. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og er liðsmaður flugliðs varnarliðsins enn í haldi vegna rannsóknarinnar. Í tilkynningu sem varnarliðið sendi frá sér segir að stúlkan hafi fundist sunnudagskvöldið, 14. ágúst, meðvitundarlaus með áverka á höfði og hálsi í setustofu íbúðaskála síns nr. 762 á Keflavíkurflugvelli. Hún hafi verið flutt í skyndi á sjúkrahús varnarliðsins en verið úrskurðuð látin kl 22:56. Rannsókn á láti stúlkunnar stendur yfir á vegum glæparannsóknardeilda flughers og flota ásamt herlögreglu og Lögreglunni á Keflavíkurflugvelli. Eru sérfræðingar í réttarrannsóknum komnir til landsins til aðstoðar. Liðsmaður flugliðs varnarliðsins og íslensk stúlka voru tekin til yfirheyrslu vegna málsins og er flugliðanum haldið í gæslu vegna gruns um að hafa valdið dauða stúlkunnar. Í tilkynningu Varnarliðsins segir að ferill Ashley Turner í bandaríkjaher hafi verið til fyrirmyndar. Minningarathöfn um hana verður haldin á Keflavíkurflugvelli, n.k. miðvikudag, 24. ágúst. "Hugur liðsmanna varnarliðsins og íbúa Keflavíkurflugvallar er hjá fjölskyldu hennar, vinum og samstarfsfólki," segir ennfremur í tilkynningu Varnarliðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×