Sport

Maradona kominn með sjónvarpsþátt

Argentíska knattspyrnuhetjan Diego Maradona er byrjaður með sjónvarpsþátt sem kallast "Kvöld með númer tíu", sem er tilvísun í númerið sem Maradona var með á bakinu sem leikmaður. Gestirnir í fyrsta þættinum voru ekkert slor, en þar bar hæst langt spjall Maradona við brasilísku goðsögnina Pele. Aðal umræðuefnið hjá þeim félögum var eiturlyfjaneysla, en sonur Pele er sem kunnugt er í fangelsi vegna afbrota tengdum neyslu. Því næst brugðu þeir félagar á leik og léku listir sínar með fótbolta. Aðrir gestir þáttarins voru þau Gabriel Batistuta og tennisstjarnan Gabriela Sabatini.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×