Innlent

Fjórir færðir í fangageymslur

Danskir dagar í Stykkishólmi um helgina fóru að mestu leyti vel fram, að sögn lögreglu. Talsverð ölvun var þó í bænum og þurfti lögregla að hafa afskipti af nokkrum mönnum vegna óláta. Ein líkamsárás var kærð til lögreglu aðfaranótt laugardags og hlaut fórnarlamb árásarinnar glóðarauga auk þess sem tennur brotnuðu. Þá voru fjórir menn færðir á lögreglustöð aðfaranótt sunnudags vegna slagsmála og ónota sem af þeim stöfuðu. Öllum var mönnunum þó sleppt skömmu eftir að þeir voru handteknir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×