Skoðun

Burðarási skipt upp

Hafliði Helgasan skrifar
Eimskipafélagið í þeirri mynd sem menn þekktu það á síðari hluta 20. aldar heyrir nú sögunni til.

Eimskipafélagið var fyrsta stóra almenningshlutafélagið með þúsundir hluthafa. Það var enda kallað óskabarn þjóðarinnar og gegndi mikilvægu hlutverki í tengingu landsins við umheiminn. Skipafélagið er reyndar ennþá til, en er ekki lengur með kennitölu almenningshlutafélagsins.

Burðarás tók við kennitölunni fyrir rúmu ári, en Burðarás hefur nú runnið inn í Straum og eignir þess skipst milli Straums og Landsbankans. Hluthafarnir fylgdu með og Landsbankinn og Straumur hafa fengið í sinn hóp þá fjölmörgu sem voru í hópi hluthafa Eimskipafélagsins sáluga.

Nú eru væntanlega einhverjir sem gráta þessi örlög félagsins. Ýmsum þykir hafa verið gengið af virðingarleysi um þennan öldung í hópi íslenskra fyrirtækja. Einnig eru þeir sem telja að för Björgólfsfeðga hafi alltaf snúist um að ganga milli bols og höfuðs á skipafélaginu. Eimskipafélagið var helsti keppinautur Hafskips á sínum tíma og elduðu þáverandi stjórnendur félagsins og Hafskipsmenn grátt silfur saman.

Menn geta svo sem haft sínar kenningar um hvert ferðinni var heitið þegar eignum Kolkrabbans var skipt milli Straums, Íslandsbanka og Björgólfsfeðga. Hinu verður ekki á móti mælt að þessi uppskipti leystu ýmsa krafta úr læðingi og hluthafar félagsins högnuðust vel á þeim hræringum sem fylgdu í kjölfarið.

Sínum augum lítur hver silfrið og ljóst að hræringarnar urðu til þess að hleypa lífi í hlutabréfamarkaðinn eins og Björgólfur Guðmundsson boðaði. Hann boðaði reyndar einnig að markmiðið væri að rjúfa flókin eignatengsl. Það er umdeilanlegt hvort eignatengslin séu einfaldari nú en þau voru áður. Hitt er ljóst að aðrir halda um þræðina nú en gerðu það fyrir rúmum tveimur árum.

Þær breytingar sem orðnar eru á eignarhaldi í viðskiptalífinu urðu vegna þess að menn með mikla peninga og sterkar skoðanir á möguleikum á markaðnum létu til sín taka. Þau skoðanaskipti hafa farið fram á hlutabréfamarkaðnum, sem er dómari í þessum leik. Þeir sem hafa selt eignirnar hafa hagnast vel. Framtíðin mun svo leiða í ljós hvort þeir sem keyptu hafa gert góð kaup.

haflidi@frettabladid.is




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×