Innlent

Aftanívagn valt yfir á veginn

Banaslysið við Hallormsstaðaskóg kom til af því að aftanívagn flutningabílsins valt yfir á hinn vegarhelminginn í sömu andrá og bílarnir mættust. Ekki liggur fyrir af hverju það gerðist. Hinir látnu eru bresk hjón, Anthony James Taylor, fæddur 1955, og Julieann Taylor, fædd árið 1954. Þau láta eftir sig tvö uppkomin börn. Þau voru hér á landi sem ferðamenn. Ökumaður bílsins er íslensk vinkona þeirra. Hún liggur enn þungt haldin á gjörgæslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×