Innlent

Reyndu að smygla hassi til Noregs

Lögreglan í Hjörring í Danmörku handtók í gær þrjá Norðmenn sem hugðust smygla tíu kílóum af hassi frá Danmörku til Noregs. Á fréttavef Politiken segir að lögregla hafi fengið ábendingu um fyrirætlan mannanna og því hafi hún látið til skarar skríða. Að öðru leyti verst lögreglan frétta af málinu. Mennirnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir í fjögurra vikna varðhald og einn í þrjá sólarhringa, en samkvæmt dönsku lögreglunni hafa þeir ekki verið gripnir áður fyrir svipuð brot.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×