Innlent

Árekstur á Þingvöllum

Þrír voru fluttir á sjúkrahús á Selfossi eftir harðan árekstur fólksbíls og vörubíls á Þingvöllum um miðjan dag í gær. Meiðsl þeirra eru þó ekki lífshættuleg. Orsakir slyssins eru ókunnar en áreksturinn var harður og skemmdist fólksbílinn mikið. Ökumann vörubílsins sakaði ekki og vildi hann enga aðhlynningu eftir áreksturinn. Vörubíllinn er lítið skemmdur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×