Innlent

Myrti þrjú börn og sjö fullorðna

Hálffertugur karlmaður myrti tíu manns í San Jeronimo de Juarez, rólegum bæ í Mexíkó. Eiginkona hans og ellefu mánaða frændi voru meðal þeirra sem maðurinn myrti. Konu sína og barnið myrti maðurinn með hnífi. Eftir það myrti hann lögreglumann og náði af honum hríðskotariffli sem hann notaði til að skjóta sjö einstaklinga til bana, þeirra á meðal tvö börn. Lögreglumenn skutu manninn í magann þannig að hann féll til jarðar, þá réðust vegfarendur á hann með sveðjum og myrtu hann án þess að lögreglan kæmi nokkrum vörnum við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×