Viðskipti innlent

Kaupa breska verslanakeðju

Baugur og Kaupþing banki hafa keypt bresku tískuverslanakeðjuna Jane Norman fyrir 117 milljónir punda, eða rúmlega þrettán milljarða íslenskra króna. Fyrirtækið rekur þrjátíu og níu verslanir og fimmtíu og sex sérleyfisverslanir í Bretlandi og á Írlandi. Viðskiptavinahópurinn er einkum ungar konur á aldrinum 15 til 25 ára.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×