Sport

Woodgate meiddur enn og aftur

Það á ekki af varnarmanninum Jonathan Woodgate að ganga. Nú hefur hann enn einu orðið fyrir meiðslum og er líklegur til að missa af fyrstu vikum komandi keppnistímabils á Spáni. Woodgate hefur enn ekki spilað leik fyrir Real Madrid frá því að hann gekk til liðsins fyrir rúmu ári og er hann sagður hafa hnigið niður á æfingu í vikunni og er nú á leita sér sérfræðiaðstoðar á Finnlandi og í Bandaríkjunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×