Guðjón Þórðarson réð ekki Staunton 22. júlí 2005 00:01
Steve Staunton, sem spilað hefur meðal annars með Liverpool, Aston Villa og Coventry á ferli sínum, vildi komast að hjá Notts County sem þjálfari og leikmaður, en Guðjón Þórðarson ákvað að ráða hann ekki til starfa. "Ég gat farið aðrar leiðir sem mér fannst skynsamlegri. Ég fékk hingað unga leikmenn sem ég þurfti ekki að greiða fyrir, og svo er ég með Mike Whitlow, fyrrverandi samherja Guðna Bergssonar hjá Bolton, en hann mun aðstoða mig við þjálfun og er þar að auki góður leikmaður." Guðjón segir undirbúningstímabilið hjá Notts County hafa gengið vel, en leikmenn félagsins hafa æft tvisvar á dag í nokkrar vikur. "Það er mikið leikjaálag í neðri deildunum á Englandi, og til þess að þola það verða leikmenn að vera í góðu líkamlegu ástandi. Æfingarnar ganga vel og ég er farinn að hlakka til þess að mótið hefjist." Leikmannahópurinn hjá Notts County er ekki stór en Guðjón vonast til þess að hann dugi á komandi tímabili. "Ég er með tuttugu og tvo leikmenn núna, og það gætu komið tveir leikmenn til viðbótar en það er ekkert víst. Ég ætla mér að nota þessa leikmenn sem ég er með núna á tímabilinu og þess vegna æfum við mikið núna. Ég held að leikmenni taki þessu æfingaálagi ágætlega því þeir vita að þetta er nauðsynlegt. Það er erfitt að spila fjörutíu og sex deildarleiki á tímabili og taka að auki þátt í þremur bikarkeppnum. Þess vegna er ég á því að æfingarnar þurfi að vera erfiðar á þessum tíma."
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa Fótbolti FH fær markahæsta Selfyssing sögunnar Handbolti Hákon lagði upp og Lille stökk upp um tvö sæti Fótbolti Grein Morgunblaðsins til skammar Sport Ísak Bergmann með mark að hætti pabba síns Fótbolti Grátlegt tap í framlengdum leik Körfubolti Snorri Steinn um ummæli Gísla: „Auðvitað ertu vonsvikinn“ Handbolti Dagskráin í dag: Lokaþáttur Grindavíkur Sport Madrídingar misstigu sig gegn fallbaráttuliði Espanyol Fótbolti Loksins brosti Dagur Sigurðsson Handbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Lokaþáttur Grindavíkur Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa FH fær markahæsta Selfyssing sögunnar Hákon lagði upp og Lille stökk upp um tvö sæti Grátlegt tap í framlengdum leik Sigurganga Metzingen stöðvuð í Íslendingaslag Madrídingar misstigu sig gegn fallbaráttuliði Espanyol Úlfarnir héldu út og fjarlægjast fallsvæðið Tólf stig Elvars dugðu ekki til í botnslagnum Botnliðið vann mikilvægan sigur og Everton fór illa með Refina Kane með tvö mörk þegar Bæjarar sluppu með skrekkinn Dana markahæst í tíunda sigrinum í röð Haukakonur færðu Eyjastúlkum níunda tapið í röð Grein Morgunblaðsins til skammar Hafdís Nína með þrennu í stórsigri á Færeyjum Salah sá um sjóðheita Bournemouth-menn Elanga og Wood með þrennur þegar Forest skoraði sjö mörk Ísak Bergmann með mark að hætti pabba síns Cecilía Rán hélt markinu hreinu í áttunda sinn Uppgjör og viðtöl: Grótta - ÍR 24-25 | ÍR vann í dramatískum leik Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika „Ég trúi því ekki að þetta sé að fara að gerast“ Gaf sautján stoðsendingar og Ármannsstelpur áfram einar taplausar Neymar fær að spila í treyjunni hans Pele Freyr fagnaði sigri í fyrsta leiknum með Brann „Litla ég hefði aldrei trúað þessu“ Snorri Steinn um ummæli Gísla: „Auðvitað ertu vonsvikinn“ Guy Smit frá KR til Vestra Ensk landsliðskona sakar Man City um mannorðsmorð Loksins brosti Dagur Sigurðsson Sjá meira