Kvaðir lagðar á símafyrirtæki 12. júlí 2005 00:01
Póst- og fjarskiptastofnun ætlar að leggja nýjar kvaðir á bæði Símann og Og Vodafone í tengslum við greiningu markaða í farsímarekstri, en slíka greiningu segist stofnunin eiga að framvæma lögum samkvæmt. Birt hafa verið frumdrög að greiningu farsímamarkaðar hér og hafa fyrirtæki frest fram í miðjan september til að koma að athugasemdum vegna hennar. Stofnunin fjallar annars vegar um heildsölumarkað fyrir aðgang og upphaf símtala í farsímanetum og hins vegar um heildsölugjaldtöku í farsímanetinu sem hringt er í. Nýjar kvaðir verða lagðar á Símann til að "tryggja að fyrirtækið verði við eðlilegum og sanngjörnum beiðnum um aðgang að farsímanetum og -þjónustu." Þá verða lagðar kvaðir bæði á Símann og Og Vodafone til að tryggja sanngjarnt heildsöluverð þegar hringt er í net þeirra og til að draga úr mun á gjaldtöku fyrirtækjanna. "Við vinnum þetta nákvæmlega í samræmi við það sem gert er í Evrópu og annars staðar," segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst og fjarskiptastofnunarinnar, en aðferðafræðin er ákveðin af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Fréttir Innlent Tækni Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Erlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði og Þrengsli opna ekki í dag Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Sjá meira