Sport

Margrét Lára skoraði fimm mörk

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fimm mörk fyrir Val sem vann ÍA 0-9 upp á Akranesi í kvöld. Margrét Lára skoraði tvö fyrstu mörk sín úr vítaspyrnum í fyrri hálfleik en skoraði síðan þrjú mörk til viðbótar utan af velli. Margrét Lára Viðarsdóttir hefur þar með skorað 15 mörk fyrir Val í 9 leikjum í Landsbankadeild kvenna í sumar og er markahæsti leikmaður deildarinnar með 6 mörkum fleira en þær Hrefna Huld Jóhannesdóttir hjá KR og Hólmfríður Magnúsdóttir hjá ÍBV. Landsbankadeild kvenna:ÍA-Valur 0-9 0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir, víti (15.) 0-2 Margrét Lára Viðarsdóttir, víti (30.) 0-3 Margrét Lára Viðarsdóttir (36.) 0-4 Laufey Ólafsdóttir (44.) 0-5 Margrét Lára Viðarsdóttir (50.) 0-6 Dóra María Lárusdóttir (51.) 0-7 Málfríður Sigurðardóttir (68.) 0-8 Margrét Lára Viðarsdóttir (77.) 0-9 Rakel Logadóttir (85.)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×