Sport

Helgi Sig mætir Ronaldinho

Helgi Sigurðsson og félagar í danska úrvalsdeildarliðinu AGF Aarhus mæta Spánarmeisturum Barcelona í æfingaleik í knattspyrnu þann 25. júlí næstkomandi. Barcelona verður í 6 daga æfingaferð í Aarhus dagana 20.-26. júlí áður en þeir halda til Asíu. Spænsku meistararnir leika tvo leiki í Danmörku, þann fyrri gegn úrvalsliði úr 2. deildinni 23. júlí. Óhætt er að segja að Atletions Stadion, heimavöllur AGF verði þétt setinn þegar Helgi mætir Ronaldinho, Samuel Etoo og hinum snillingunum í Barcelona. Helgi á eitt ár eftir af samningi sínum við AGF. Frá Danmörku heldur Barcelona síðan til Kína þar sem þeir leika við Shenzen Jianlibao 3. ágúst. Deildarkeppnin á Spáni hefst helgina 27.-28. ágúst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×