Viðskipti innlent

Stefnir í samkomulag

Aðalfundur Sparisjóðs Skagfirðinga, áður Sparisjóður Hólahrepps, verður haldinn klukkan hálftvö í dag. Miklar deilur hafa staðið milli tveggja stofnfjáreigendahópa sem buðu fram sitt hvorn listann á aðalfundi í nóvember síðastliðnum, en mögulegt er að sættir náist á fundinum í dag. Samkvæmt heimildinum Fréttablaðsins hafa hóparnir rætt mikið saman síðustu daga. Ekki fékkst staðfest í gærkvöld að samkomulag hefði náðst en allir sem blaðið talaði við um málið voru bjartsýnir á að fundurinn yrði góður.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×