Sport

Ísland með eins mark forskot

Íslenska handboltalandsliðið er með eins marks forskot, 18-17, í hálfleik á seinni úrslitaleik sínum við Hvít Rússa um sæti á Evrópumótinu í Sviss í janúar 2006. Leikurinn er búinn að haldast jafn og hvorugt liðið hefur náð tveggja marka forskoti. Einar Hólmgeirsson er markhæstur með 4 mörk úr 5 skotum en þeir Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Petersson og Róbert Gunnarsson hafa allir skorað 3 mörk.Birkir Ívar Guðmundsson hefur varið 5 skot í markinu þar af var eitt þeirra víti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×