Innlent

Geymdi þýfi fyrir litla bróður

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrítugan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að taka við og geyma þýfi fyrir sex árum yngri bróður sinn. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár. Maðurinn tók í byrjun janúar við þremur fartölvum hjá yngri bróður sínum, en sá hafði stolið þeim í verslun Office One í Skeifunni um nóttina. Bróðirinn mætti með þýfið heim til mannsins klukkan fimm að morgni, en hann tók við þeim og lánaði bróðurnum fyrir leigubíl. Sá hafði stolið fjórum tölvum, en ein varð eftir í ruslagámi við verslunina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×