Innlent

Braut glas á andliti annars

31 árs gamall maður var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að brjóta glas á andliti manns inni á skemmtistaðnum Glaumbar í apríllok 2001. Refsingin er skilorðsbundin í tvö ár, en að auki þarf hann að greiða fórnarlambi sínu tæpar 370.000 krónur í skaðabætur og sakarkostnað upp á rúmar 223.000 krónur. Maðurinn sem ráðist var á skarst á neðri vör og fimm framtennur brotnuðu. Árásarmaðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot og sektir fyrir brot á vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×