Innlent

Sat fastur undir Höfðabakkabrú

Vörubifreið með tengivagn festist undir Höfðabakkabrú yfir Vesturlandsveg um klukkan tuttugu mínútur fyrir 12 í gærdag. Ökumaður bifreiðarinnar hafði ekki gætt að því að farmur tengivagnsins var hærri en svo að hann kæmist undir brúnna og því fór sem fór. Ekki taldi lögregla að tjón hafi orðið vegna atviksins, en á meðan vagninn var losaður hægði þó verulega á umferð því bíllinn teppti eina akreinina. Að sögn lögreglu hefur verið nokkuð um að vörubílstjórar sýni ekki næga aðgát varðandi hæð hlass eða tengivagna þegar ekið er undir brýr.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×