Innlent

Áfrýjar úrskurði til Hæstaréttar

Englendingurinn Paul Gill sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald þar til á mánudag eftir að hafa slett grænum vökva á fundargesti álráðstefnu á Nordica-hótelinu hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar. Tveir Íslendingar tóku þátt í mótmælunum með honum á hótelinu en var sleppt úr haldi lögreglu. Mótmælastaða hófst við dómsmálaráðuneytið nú klukkan tvö þar sem gæsluvarðhaldsúrskurðinum og ranglátri málsmeðferð yfir Paul Gill er mótmælt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×