Innlent

Ung kona kærði kynferðisbrot

Lögreglan í Keflavík rannsakar kynferðisbrot sem átti sér þar stað í heimahúsi um helgina. Kona um tvítugt hefur kært mann á svipuðum aldri fyrir að nýta sér ölvunarástand hennar eftir gleðskap sem stóð á laugardagskvöld og fram á aðfaranótt sunnudags. Enn á eftir að kalla til einhver vitni og vill lögregla því ekki fara nánar í málsatvik meðan rannsókn stendur yfir. Ekki liggur til að mynda fyrir hvort um nauðgun var að ræða eða annars konar misneytingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×