Innlent

Farið fram á gæsluvarðhald

Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir Paul Gill, breska atvinnumótmælandanum, sem var einn þremenninganna sem mótmæltu á álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær. Náttúruvaktin þvær hendur sínar af Ólafi Páli Sigurðssyni, einum mótmælendanna, þrátt fyrir að fram komi á heimasíðu samtakanna að þegar hún varð að fullgildum samtökum í október síðastliðnum gegndi Ólafur Páll Sigurðsson starfi framkvæmdastjóra þar. Ásta Þorleifsdóttir, stjórnmarmaður Náttúruvaktarinnar, segir hann þó ekki hafa gegnt því starfi frá því í október.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×