Innlent

Rússi enn á gjörgæsludeild

Rússneski sjómaðurinn, sem Landhelgisgæslan sótti í togarann Ostrovet frá Dóminíku í fyrrinótt, liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi en er þó ekki í lífshættu. Maðurinn hlaut stungusár á kvið við fiskvinnslu um borð og fer ræðismaður sendiráðs Rússlands á Íslandi fyrir máli hans. Ekki er vitað hvort eða hvenær atvinnuveitandi hans sendir hann aftur til vinnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×