Innlent

Margdæmdur aftur í steininn

29 ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot, þjófnað og umboðssvik. Í nokkur skipti var maðurinn tekinn með lítilræði af kannabisefnum og amfetamíni. Í byrjun nóvember stal hann smávörum fyrir um 18.000 krónur í versluninni Fjarðarkaupum, um miðjan febrúar stal hann Dewalt-skrúfvél úr verslun og nokkrum dögum síðar tösku með síma, greiðslukorti og fleiru úr húsnæði AA-samtakanna í Hafnarfirði. Illa fengið kortið notaði hann svo við vörukaup. Í lok mars braust maðurinn svo inn í bifreið og stal úr henni. Maðurinn er margdæmdur þjófur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×