Viðskipti innlent

6,5 prósentum muni á stýrivöxtum

MYND/Vísir
Stýrivextir hér á landi eru nú 9 prósent, eða 6,5 prósentustigum hærri en í helstu viðskiptalöndunum þar sem þeir eru að meðaltali 2,5 prósent. Þetta veldur því að vaxtamunur við útlönd er 6,5 prósent á skammtímalánum að því er fram kemur í Vegvísi Landsbankans. Þar segir enn fremur að greiningardeild Landsbankans eigi von á að stýrivextir hér á landi fari hæst í 10 prósent í haust en á sama tíma geri spár erlendra greiningaraðila ekki ráð fyrir stýrivaxtahækkunum í viðskiptalöndum Íslands öðrum en Bandaríkjunum. Því sé allt útlit fyrir að vaxtamunur við útlönd eigi enn eftir að aukast.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×