Viðskipti innlent

Avion í Kauphöllina innan 8 mánaða

Burðarás hefur selt Avion Group 94 prósenta hlut sinn í Eimskipafélagi Íslands. Avion Group er í meirihlutaeigu Magnúsar Þorsteinssonar sem seldi hlut sinn í Samson, sem hann átti með Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor, á dögunum. Samson átti stóra hluti í Eimskipum og Landsbankanum. Einnig stefnir Avion Group að kaupum á 5,9% hlut P/F Tjalds í Eimskipafélaginu og þannig eignast Avion Group félagið að fullu. Með þessu verður til stærsta félag landsins í flutningastarfsemi með 110 milljarða króna veltu, 4.400 starfsmenn og 80 starfsstöðvar um heim allan. Heildarsöluverð félagsins er 23 milljarðar króna og er söluverð hlutar Burðaráss því 21,6 milljarðar króna. Stefnt er að skráningu Avion Group í Kauphöll Íslands eigi síðar en 31. janúar 2006. Náist þetta markmið ekki hafa stærstu hluthafar Avion Group skuldbundið sig til að kaupa áðurnefnda hluti af Burðarási á sömu kjörum. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, segir að verðið sem Burðarás fær fyrir flutningafélagið vera mjög gott og er innleystur söluhagnaður fyrir skatta um 15,5 milljarðar króna. Það er því ljóst að afkoma Burðaráss á árinu verður mjög góð. Spurður hvers vegna þeir selji nú, með hliðsjón af því að margir hafi sýnt Eimskip áhuga, segir Friðrik að það sé fyrst og fremst vegna þess að mjög gott verð hafi boðist fyrir félagið, auk þess sem hluti andvirðisins sé greiddur með bréfum í mjög öflugu flutningafélagi sem líkleg séu til að ávaxtast vel eins og reyndin hafi verið með Eimskip í gegnum árin.    Burðarás telur einnig að með þessum samningi sé tryggt að hluthafar félagsins eigi áfram eignarhlut í öflugasta flutningafélagi landsins. Samningurinn er gerður með fyrirvara um fjármögnun kaupanna og að hluthafafundur í Avion Group samþykki útgáfu þeirra hluta sem afhentir eru Burðarási í viðskiptunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×