Viðskipti innlent

Þórólfur forstjóri Icelandic Group

Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, var í gærkvöldi ráðinn forstjóri Icelandic Group sem er hið nýja heiti Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Sjóvíkur. Þórólfur tekur við af Gunnari Svavarssyni. Þá var stjórn kjörin fyrir hið nýja sameinaða fyrirtæki. Í henni eru Jón Kristjánsson formaður, Baldur Guðnason, Hreggviður Jónsson, Þór Kristjánsson og Þórður Már Jóhannesson. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 3000 og áætluð velta á þessu ári níutíu milljarðar króna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×