Viðskipti innlent

Segir launakönnun ómarktæka

Það er óskynsamlegt og felur í sér sóun að mismuna í launum á grundvelli annars en hæfnis og framlags. Þetta segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann telur jafnframt að könnun Háskólans á Bifröst um launamun kynjanna sé ómarktæk. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar tvö í gær eru karlmenn sem útskrifast hafa frá Viðskiptaháskólinn á Bifröst með yfir 50 prósentum hærri laun en konur sem útskrifast hafa á sama tíma og eru flestir rasandi yfir þessum niðurstöðum. Umræða sem þessi verður með reglulegu millibili en svo virðist sem lítið batni. En hverjir eru það sem raunverulega eiga sök á viðvarandi ástandi? Eru konur einfaldlega ekki nógu harðar þegar þær setjast að samningaborði eða á atvinnulífið einhverja sök í málinu? Bera stjórnendur fyrirtækjanna kannski einhverja ábyrgð á stöðunni? Ari Edwald, formaður Samtaka atvinnulífins, segir könnun Háskólans á Bifröst ekki marktæka hvað varðar launamun kynjanna þar sem hún beri ekki saman laun fyrir svipuð störf eða vinnutíma. Hins vegar þurfi að hlúa að þessu málefni og að kynjum sé ekki mismunað hvað varðar stöðu eða laun. Ari spyr hvað það feli í sér ef vinnuveitandi standi frammi fyrir því að geta ráðið hæfari konu á lægri launum en því sé haldið fram að hann hafi tilhneigingu til þess að ráða jafnvel óhæfari karl og borga honum hærri laun. Hann segir það fela í sér lélegri rekstur og minni arðsemi af honum. Ari spyr hvort það sé það sem menn stefni að með fyrirtækjarekstri á markaði. Ari segir Samtök atvinnulífsins reyna að stuðla að meira launajafnrétti og eru samtökin aðilar að jafnréttishópi og vinnumarkaðshópi og leggi þannig sitt af mörkum til framfara þessara mála.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×