Innlent

Beið bana í Hvalfirði

Karlmaður á þrítugsaldri beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í gærmorgun. Slysið átti sér stað á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman. Hinn látni var ökumaður fólksbílsins. Bílstjóra flutningabílsins sakaði ekki, en flutningabíllinn hafnaði utan vegar. Áreksturinn var mjög harkalegur og var veginum um Hvalfjörð lokað í um tvær klukkustundir vegna slyssins. Áreksturinn varð skammt frá Meðalfellsafleggjara sunnan til í Hvalfirði. Orsakir hans liggja ekki fyrir og eru enn í rannsókn hjá lögreglunni í Reykjavík. Hinn látni var 24 ára gamall og úr Reykjavík. Ekki er unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×