Innlent

Ætlaði að selja efnin

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem tekinn var með 300 grömm af amfetamíni á heimili sínu í ársbyrjun 2004. Maðurinn hafði í héraði verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að flytja efnin sjálfur inn frá Kaupmannahöfn, blanda þau og búa til sölu. Í Hæstarétti þótti ekki sannað að maðurinn hefði sjálfur smyglað efnunum til landsins en dómur héraðsdóms engu að síður staðfestur þar sem sannað þótti að hann hefði átt efnin sjálfur og ætlað sér að selja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×