Innlent

Nýr dagur slapp við sekt

Héraðsdómur Norðurlands eystra ógilti fjárnám Bílastæðasjóðs Akureyrar í bíl fyrirtækisins Nýr dagur sem gert var vegna þess að fyrirtækið neitaði að borga stöðumælasekt. Í dómnum kemur fram að stöðumælasektin hafi verið fyllt vitlaust út og skírskotað til vitlausra laga á innheimtuseðli. Einnig tókst verjanda bílastæðasjóðsins ekki að sýna fram á að bílnum hefði í raun verið lagt ólöglega. Fjárnámið var því ógilt og Bílastæðasjóði Akureyrar gert að borga Nýjum degi 100 þúsund krónur í málskostnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×