Innlent

Tvö innbrot í nótt

Brotist var inn í tölvuverslun HP við Brautarholt í Reykjavík í nótt og þaðan stolið tveimur fartölvum, samtals að verðmæti um hálf milljón króna. Vitni sáu hvítan Mitshubishi Lancer bíl ekið frá staðnum og gáfu lögreglu upp númer bílsins en við nánari athugun kom í ljós að númer og bíll pössuðu ekki saman því númerið tilheyrir sendiferðabíl sem ekki á að vera í umferð. Fjórir menn hafa verið handteknir grunaðir um innbrotið og verða þeir yfirheyrðir í dag. Lögreglan rannsakar einnig annað innbrot í nótt þar sem tölvu var jafnframt stolið. Í því tilfelli var brotist inn í íbúð við Eyjabakka í Breiðholti og tölvuturni stolið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×