Innlent

Fjórir eða fimm kærðir vegna slyss

Fjórir eða fimm menn hafa verið ákærðir af ríkissaksóknara vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Mennirnir eru starfsmenn Impregilo, Arnarfells og VIJV sem sér um eftirlit með svæðinu sem slysið varð á. Maðurinn sem lést í slysinu var 25 ára. Hann var við störf ofan í Hafrahvammagljúfri um hánótt þegar gríðarstór grjóthnullungur féll á hann. Impregilo og undirverktakinn Arnarfell höfðu fengið skriflegar athugasemdir vegna þeirrar hættu sem stafaði af grjóthruni úr gljúfrinu undir Fremri-Kárahnjúk áður en slysið varð. Lögreglurannsókn beindist að því hvort öryggi starfsmanna hefði verið áfátt. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Austurlands í byrjun næsta mánaðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×