Viðskipti innlent

Kári aldrei bjartsýnni

Tap Íslenskrar erfðagreiningar á fyrsta ársfjórðungi nam tæpum milljarði króna. Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins, segir fyrirtækið þó aldrei hafa gengið betur og sjálfur hafi hann aldrei verið bjartsýnni. Þetta er heldur verri afkoma en búist var við en tap félagsins á sama tímabili í fyrra nam um 760 milljónum íslenskra króna. Félagið tapaði því um 250 milljónum meira í ár en á sama tíma í fyrra. Þá voru tekjur félagsins einnig undir væntingum en þær námu um 9,5 milljónum dollara á fyrsta ársfjórðungi, eða sem nemur um 600 milljónum króna, sem er 30 milljónum króna minna en í fyrra. Kári segir þó að ekki sé hægt að tala um tap heldur fjárfestingu. Það sé svipað því að segja að Kárahnjúkavirkjun sé að tapa tugmilljónum á mánuði. ÍE sé nefnilega að búa til vöru líkt og Kárahnjúkavirkjun stefni að því að framleiða rafmagn. Kári segir ástæður aukins tapreksturs aukin fjárframlög til rannsókna og þróunarvinnu vegna lyfjaþróunar fyrirtækisins. Hann segir þróunina hafa gengið vel og betur en gengur og gerist í iðnaðinum almennt. Þá segir hann að Íslensk erfðagreining hafi nægilegt fé til að fara með öll þau lyf á markað sem unnið er að og að staða fyrirtækisins hafi aldrei verið sterkari. Jafnmikið sé í kassanum nú og í lok síðasta árs, eða u.þ.b. 200 milljónir dollara. Spurður hvenær megi gera ráð fyrir að fyrirtækið fari að skila hagnaði segir Kára það verða þegar fyrsta lyfið fari á markað, eða í kringum 2009. Og Kári er bjartsýnn. Hann segir fyrirtækið aldrei hafa staðið betur og þ.a.l. að ef hann ætti að finna einhverja ástæðu til að vera þunglyndur þá myndi hann leita hennar utan fyrirtækisins en ekki utan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×