Ég stefndi alltaf að þessu 30. apríl 2005 00:01
Jón Arnór Stefánsson er enn í skýjunum eftir að hafa orðið Evrópumeistari með liði sínu Dynamo St. Petersburg á fimmtudaginn. Hann segir að með sigrinum hafi langþráð markmið nást. „Tilfinningin er yndisleg. Að vinna Evróputitil er nokkuð sem allir íþróttamenn í Evrópu stefna að og það er ótrúlegt að sá draumur hafi ræst hjá mér. Alveg frábært,“ sagði Jón Arnór Stefánsson, sem á fimmtudaginn varð fyrsti Íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í körfubolta. Þrátt fyrir að tveir dagar væru liðnir frá því að Jón Arnór og félagar í Dynamo St. Petersburg tryggðu sér titilinn var okkar maður ennþá í skýjunum þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. Jón Arnór segir að sigur í keppninni hafi verið markmið Dynamo frá því fyrir tímabilið. „Þetta var alltaf takmark liðsins og einnig mitt persónulega takmark. Við vissum að þetta væri okkar keppni því í henni getum við stillt upp okkar allra sterkasta liði og spilað nákvæmlega eins og við viljum,“ segir Jón Arnór en í rússnesku deildakeppninni er liðum skylt að vera ávallt með tvo heimamenn inni á vellinum og því fá hinir mörgu öflugu erlendu leikmenn Dynamo ekki að spila eins mikið og ef allt væri eðlilegt. Í Evrópukeppninni eru hins vegar engar takmarkanir og þegar allur leikmannahópur Dynamo fær að njóta sín standast fáir liðinu snúning. Jón segir að allt hafi orðið vitlaust eftir að titillinn var í höfn. „Þetta var alvöru. Þjálfararnir og stjórnarmennirnir misstu sig alveg í sigurvímunni, hlupu inn á völlinn til að samfagna leikmönnunum og það voru mikil læti. Þetta var alveg æðislegt,“ segir Jón Arnór, sem kveðst ekki hafa verið nægilega sáttur með sinn leik. „Þetta var ekki alveg minn dagur. Ég var ekki að hitta vel en var staðráðinn í að láta það ekki á mig fá. Ég spilaði mína vörn og barðist og hugsaði bara um að hjálpa liðinu að vinna leikinn,“ segir Jón Arnór en hann skoraði níu stig á þeim 29 mínútum sem hann spilaði í leiknum og hitti úr þremur af 12 skotum sínum í leiknum. Aðspurður um spennustigið hjá sjálfum sér sagðist Jón hafa beðið eftir leikjunum í marga daga. „Alveg frá því að við tryggðum okkur sæti í undanúrslitum hef ég verið nánast eins og lítill krakki. Ég var búinn að bíða spenntur eftir þessari helgi og auðvitað var maður með smá hnút í maganum. En þannig á það líka að vera. Ef þessi hnútur fer getur maður alveg eins hætt í körfubolta,“ sagði Jón. Bróðir Jóns Arnórs, handboltamaðurinn Ólafur Stefánsson, er einnig kominn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í handbolta og það gæti því vel farið svo að fjölskyldan muni hafa tvo Evrópumeistara á sínum snærum næsta árið. „Já, hann verður að vinna. Hann má ekki vera minni maður en ég,“ segir Jón Arnór og hlær. „Nei, en að öllu gríni slepptu þá vona ég innilega að hann vinni titilinn líka. Hann á það skilið.“
Körfubolti Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Körfubolti Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Sara lagði upp í fyrsta leik í Sádi-Arabíu Stöðvuðu Bayern sem missti Kane meiddan af velli Martin magnaður í fyrsta sigrinum Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Jóhann á sigurbraut í Sádi-Arabíu KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Bjarki með átta gegn Brössum Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn