Innlent

Hrottaleg árás fyrir Hæstarétt

Hrottafengin árás handrukkaranna Annþórs Kristjáns Karlssonar og Ólafs Valtýs Rögnvaldssonar verður tekin fyrir í Hæstarétti í dag. Þeir réðust á mann á sjúkrabeði á heimili hans og barði Annþór hann með kylfu. Annþór hefur á síðustu tólf árum verið dæmdur átta sinnum fyrir brot gegn almennum hegningarlögum. Þá hefur hann verið dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Ólafur hefur sex sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, fíkniefnalögum og umferðarlögum frá árinu 1996.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×