Skoðun

Benedikt XVI boðar lítið nýtt

Hafliði Helgason skrifar
Valið á nýjum páfa urðu frjálslyndum víða um heim nokkur vonbrigði. Joseph Ratzinger sem valinn var í embætti páfa verður seint talinn til þeirra sem aðhyllast frjálslynd viðhorf innan kaþólsku kirkjunnar. Valið sýnir að kaþólska kirkjan sem stofnun er ekki tilbúinn til þeirrar endurskoðunar viðhorfa sem margir vonuðust eftir.

Íhaldsöm öfl eru greinilega enn í meirihluta innan kirkjunnar og staða þeirra svo sterk að ekki tók langan tíma að velja páfa í þetta sinn. Jafnvel þótt staða þeirra hefði ekki verið svona sterk og að niðurstaðan hefði orðið málamiðlun í birtingarmynd örlítið frjálslyndair páfa, er ekki víst að sá hefði átt auðvelt með að hrinda í framkvæmd breytingum í átt til frjálsræðis innan kaþólsku kirkjunnar.

Benedikt XVI. verður vonandi farsæll í starfi og vonandi leggur hann heiminum til boðskap sem verður til farsældar mannkyni. Hann er líkt og fyrirrennari hans barn hörmungartíma í Evrópu þegar illska og grimmd réði ríkjum. Rifjuð hefur verið upp þátttaka hans í Hitlersæskunni. Nasistísk tenging er þó tæplega sanngjörn. Hann var á barnsaldri þegar Heimstyrjöldin síðari braust út og átján ára þegar henni lauk. Hörmungar stríðsins hafa sennilega mótað manndómsár hans meira en hugmyndafræði nasista.

Hins vegar er ljóst að viðhorf hans eru á margan hátt einstrengingsleg. Sumt af því sem hann hefur sagt er rammasta afturhald; annað er áminning um að á sama tíma og velsældin ríkir á vesturlöndum, þá er tómið stærra en nokkru sinni fyrr í lífi margra.

Kaþólska kirkjan hefur frestað auknu frjálslyndi um að minnsta kosti einn páfa. Kirkjan hefur lifað af ýmsar breytingar tímanna og er í eðli sínu íhaldssöm. Það er eðlilegt að stofnun eins og kaþólska kirkjan breytist hægt og hún á ekki að hlaupa á eftir tískustraumum stundarinnar. Né heldur á hún að þóknast hagsmunum valdhafa á hverjum tíma. Hún er í eðli sínu í andstöðu við samtíma sinn að vissu marki á hverjum tíma. Hins vegar hefur hún nú verið á skjön við samtíma sinn um langt skeið. Sá tími mun koma að hún stígur skref í frjálsræðisátt. Kannski frá og með næsta páfa hver veit.

Benedikt XVI. er 78 ára gamall og frjálslynd öfl innan kaþólsku kirkjunnar fá nú nokkur ár til þess að undirbúa sig fyrir næsta páfakjör. Það er mikilvægt fyrir kirkjuna að sá tími verði vel nýttur og að Benedikt XVI gegnum taki við páfi sem leiðir sofnuð sinn veg mannúðar og umburðarlyndis. Páfa sem horfir á kærleika og fyrirgefningu sem megininntak viðhorfa sinna til manna og málefna.

Hafliði Helgason -haflidi@frettabladid.is




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×