Innlent

Forðuðu stórtjóni af völdum elds

Snarræði bænda á bænum Þórustöðum á Ströndum og nágranna þeirra kom í veg fyrir að stórtjón og fjárfellir hlytist af eldi sem kviknaði í dráttarvél á bænum í gær. Hún stóð við fjárhús þar sem kindur voru inni. Bændurnir héldu eldinum í skefjum þar til slökkviliðið á Hólmavík kom á vettvang og slökkti hann. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni í dráttarvélinni sem er stórskemmd eftir eldinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×