Innlent

Kaupa 25 nýja bíla

Gert er ráð fyrir að embætti Ríkislögreglustjóra kaupi 25 nýja lögreglubíla á þessu ári og eyði til þess um hundrað milljónum króna. Lögreglan í Reykjavík fær tíu nýja bíla en önnur embætti skipta hinum þrettán á milli sín. Tveir bílanna koma í staðinn fyrir aðra sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Er þannig áætlað að síðustu svokölluðu "Svörtu maríum" verði skipt út á árinu en þær hafa verið í umferð um áraraðir við almenna ánægju lögreglumanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×