Innlent

Hugðust borga lyf með skartgripum

Karl og kona í annarlegu ástandi voru handtekin i lyfjaverslun í Kópavogi undir kvöld þar sem fólkið reyndi að greiða fyrir lyf með skartgripum. Strax vaknaði grunur um að þarna væri fólkið sem rændi skartgripum úr verslun við Skólavörðustíg síðdegis og beitti eigandann valdi. Það liggur þó ekki ljóst fyrir því fólkið var í annarlegu ástandi vegna lyfjaáts og verður ekki yfirheyrt fyrr en það hefur sofið áhrifin úr sér í fangageymslum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×