Innlent

Fundu mikið magn af hassi

Lögreglan á Akureyri handtók í gær þrjá menn vegna fíkniefnamáls. Mennirnir voru á leið frá Reykjavík til Akureyrar og fundust um 300 grömm af hassi í fórum þeirra. Þetta er eitt mesta magn af hassi sem lögreglan á Akureyri hefur lagt hald á í einu. Mennirnir hafa verið yfirheyrðir en lögregla telur málið vera á byrjunarstigi. Tveir mannanna hafa hafa áður komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefnamála, líkamsárása, hótana og fleiri afbrota.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×