Innlent

Rán í verslun 10-11 í Kópavogi

Rán var framið í verslun 10-11 í verslunarmiðstöðinni við Engihjalla í Kópavogi síðdegis í gær. Að sögn sjónarvotta voru tveir menn um tvítugt að verki, en þeir komust undan. Að sögn lögreglu huldu mennirnir andlit sín. Annar ræninginn kvað hafa rekið skrúfjárn í maga afgreiðslustúlku og hótað að stinga hana ef hún afhenti ekki peninga úr afgreiðslukassa. Tvímenningarnir náðu peningum úr kassanum og tóku með sér eitthvað af tóbaki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×